Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Thursday

Slappar dagbókarfærslur

Ég ákvað að setjast niður og skrifa inn dagbókarfærslu núna, vegna þess að nú hef ég tíma og allar tarnir og vesen er yfirstaðið.
En nú hef ég heldur ekkert að segja. Ég sit bara í móki og yfirvinnuþynnku og get ekki hugsað af andlegri þreytu.
Ég held að það væri óvitlaust að fara með lappann með mér næst þegar ég er að vinna í törn, svo að ég geti skrifað í pásunum, um alla hlutina sem veltast um í kollinum á mér þegar mikið er að gera.

Lappar eru sniðugir, en ég nota okkar lappa alltof lítið ... tími til kominn að fara að ferðast um með hann!

0 afskipti:

Post a Comment

<< Home