Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Monday

Björt framtíð

Ég er að drukkna í vinnu þessa dagana. Ég er komin í tvö stór verkefni samtímis, sem ættu hvert um sig að vera 100% vinna, en ég sinni þeim núna til skiptis og allur frítími minn fer í vinnuna.


En ég varð svo "heppin" í dag að Garpur er orðinn veikur, kominn með hita og svona, svo að ég fékk að vera heima í dag! En svo náði ég nú samt ekkert að vera í afslöppun heima með veikt barn ... varð að skreppa á fund, klára jólakortin, fara með Garp til læknis o.fl., svo að ég hlakka núna til þess að komast í vinnuna á morgun og "slappa af"!


Ég er mjög spennt núna þegar ég horfi inn í eigin framtíð, það er svo margt spennandi framundan. Eftir núverandi verkefni, ætla ég að demba mér út á hálan ís og hefja störf á vinnustofu og reyna fyrir mér sem sjálfstæður fata-og textílhönnuður. Svo langar mig að vera ólétt á sama tíma eftir ár. Þá vona ég að bróðir minn verði kominn til landsins með alla fjölskylduna sína og að ég geti hjálpað þeim að koma sér fyrir hér á landi. Haustið 2006 eða 2007 stefni ég svo á að draga alla fjölskylduna mína út í lönd, þar sem að ég ætla að næla mér í eitt stykki mastersgráðu eða svo.

Ég geri mér alveg grein fyrir því að plön breytast og þroskast, en þetta er það sem er á teikniborðinu núna, svo sjáum við bara hvað setur. Ég er mjög spennt!



0 afskipti:

Post a Comment

<< Home