Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Tuesday

Lifandi mynd af hárgreiðsludömu að bíða

Ég sá svo skemmtilegt "listaverk" á leiðinni í vinnuna í dag.

Þegar bíllinn fór framhjá hárgreiðslustofu sem er á leiðinni, var mér litið inn um glugga stofunnar, en myndin sem blasti við mér hrópaði beinlínis á athygli.

Glugginn er stór og hann rammar vel inn vinstri hlið fremsta stóls stofunnar. Í stólnum sat hárgreiðsludama, en hún virtist vera alein á stofunni, eflaust var hún að bíða eftir fyrsta kúnnanum sínum þennan morguninn.
Henni leiddist auðsjáanlega og hún gerði sér enga grein fyrir því að hún sæti í miðjum ramma á verki sem blasti út á götu. Hún hallaði sér vel aftur í stólnum svo að hárið á henni flæddi afturfyrir höfuðpúða stólsins. Hún hélt á hárþurrku afturfyrir sig, með útteygðum hægri handleggnum, undir hárinu og blés í það lífi, svo að hárið feyktist upp og út um allt.
Hárgreiðsludaman sat þarna með lokuð augun og hreyfði höfuðið um til þess að blásturinn færi um allt höfuð hennar. Hún virtist njóta sín vel, þrátt fyrir það að mér fyndist hún bera þess merki að henni leiddist biðin líka.

Mér fannst þetta vera afar falleg sjón og ég hef hugsað um hana oft í dag. Þetta upplifði ég eins og ég væri að upplifa falið listaverk. Það var alveg frábært að sjá þetta svona innanum alla morguntraffíkina og stressið.

0 afskipti:

Post a Comment

<< Home