Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Thursday

Að komast í form

Það gerist alveg reglulega að ég fæ æði fyrir því að reyna að koma mér í form. Núna finn ég að slíkar pælingar eru að fara að steypast yfir mig enn einu sinni. Oftast geri ég ekkert í því, hugsa bara um það þar til ég fæ ógeð og hugsa svo með sjálfri mér á endanum: jú, ég get svo sem alveg sætt við við það sem ég sé í speglinum, ég er ekki sem verst.
Málið er ekki það að ég sé hrikalega óánægð með sjálfa mig, ég er bara svo auðsannfærð að ég fell trekk í trekk, gjörsamlega fyrir því að ég verði nú að fara út, kaupa mér kjól sem passar ekki á mig og reyna svo að komast í kjólinn fyrir jólinn. Kannski vantar mig frekar bara eitthvað skemmtilegt "challenge".
Ég reyndi einu sinni að hætta að borða sykur ... það gekk alveg heillengi, en svo þegar ég var búin að sanna að ég gæti það, þá var það ekkert spennandi lengur. Núna borða ég bara það sem mér sýnist.
Hmmm, hvað gæti ég reynt næst ... hvað með að drekka vatn í staðinn fyrir alla aðra drykki og gera styrkjandi æfingar fyrir bakið og kviðinn daglega (þarf að styrkja á mér bakið, líkamsburð minn þarf að laga svo ég sé ekki alltaf hokin í baki.) ... jú, mér líst vel á það, þetta verður skemmtilegt "challenge" ... ætli ég haldi það út fram að jólum? Sjáum til, ég byrja .. NÚNA!

Stína steka!

2 afskipti:

At 12/02/2004, Blogger Kristína said...

Ég hef ákveðið að bjarga sjálfri mér frá því að gerast krónískur svindlari á eigin kúr og skilgreina kaffi sem fíkn, en ekki drykk ... úff, þar skall hurð nærri hælum!

 
At 12/14/2004, Blogger Kristína said...

Úff, ég er búin að svindla big-time á þessum svakalega kúr sem ég setti mér. Ég held að ég úrskurði mig bara fallna á honum svo að ég þurfi ekki að pæla meira í því .... þetta var asnalegur kúr hvort eð er!

 

Post a Comment

<< Home