Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Thursday

Íslendingar eru æði

Mér finnst Íslendingar vera æði, sérstaklega þegar það kemur að sjálfsáliti, sjálfstæði og atorkusemi. Ég man efir því þegar ég vann með hönnunarnemum í London sem áttu sér þann draum heitastan að verða sníðameistarar hjá frægum fatahönnuði eða fá að vinna sem aðstoðarhönnuðir einhversstaðar... og ég sagði "HA? Bara það?".
Íslendingur mundi segja að það væri svo sem fín byrjun á upphafi ferils síns, en framtíðaráformin snérust frekar um að koma eigin hönnun á framfæri, stofna eigið fyrirtæki, komast í metorð í útlöndum og ná heimsyfirráðum.

Uppáhaldsíslendingarnir mínir í dag eru Hugrún Dögg Árnadóttir og Magni Þorsteinsson sem reka KRON verslanirnar á Laugaveginum. Þau eru ekta Íslendingar í húð og hár, geta allt og dettur ekki í hug að efast það. Megi þeim ganga allt í haginn í ókominni framtíð og ná heimsyfirráðum.

0 afskipti:

Post a Comment

<< Home