Góður matur
Ég var að skálda matarmikið salat í kvöldmatinn sem ég er svo ánægð með. Hér kemur hráefnaupptalningin og uppskriftin að því ...
poki af klettasalatblöndu
tveir tómatar
lítil gul papríka
1/3 agúrka
1/3 dós fetaostur
1/2 pakki furuhnetur
potta-botnfylli af penne-heilhveitipasta
1/5 blaðlaukur
5 litlir sveppir
lítið flak af reyktum silungi
lítið flak af frystum silungi
Fyrst þurrristaði ég furuhneturnar á pönnu. Þíddi frysta fiskinn í örbylgjuofninum. Og byrjaði að sjóða pastað.
Svo skar ég niður tómatana, papríkuna og agúrkuna, og setti í skál ásamt salatinu og fetaostinum.
Því næst skar ég niður blaðlaukinn og sveppina, setti á pönnu og steikti ásamt þiðnaða og reykta silungnum, þar til fiskurinn var steiktur í gegn.
Pastað skolaði ég og bætti ofaná grænmetið í skálinni, svo fór allt sem var í steikingarpönnunni sömuleiðis í salatskálina og furuhneturnar í lokin.
Svo hrærði ég aðeins upp í salatinu og það var reddí!!! ... og rosagott!!!



3 afskipti:
Thank you!
[url=http://xbscveml.com/nxni/nkgz.html]My homepage[/url] | [url=http://jawsohbg.com/nkhz/wldo.html]Cool site[/url]
Thank you!
My homepage | Please visit
Good design!
http://xbscveml.com/nxni/nkgz.html | http://ctockzds.com/znhr/lqpy.html
Post a Comment
<< Home