Náttúruhamfarirnar 2004
Ég er enn að reyna að átta mig á því að flóðbylgjan sem varð mörgum tugum þúsunda að bana í Indlandshafi um jólin hafi verið í alvörunni.
Við fjölskyldan fórum út til Englands yfir hátíðirnar til að deila jólunum með tangdamömmu minni og eiginmanni hennar.
Við fréttum náttúrulega af hörmungunum í fréttunum þar og fylgdumst með þeim á hverjum degi. En vegna þess að ég var ekki heima hjá mér að fylgjast með umræðunum í fréttunum og Kastljósinu heima, þá fannst mér þetta ekki getað vera raunverulegt. Mér fannst í alvörunni að þetta væri eitthvað sem yrði ekki hluti af raunveruleikanum lengur þegar ég væri komin heim, að fréttin hefði ekki borist hingað og þegar að við kæmum heim þá kæmumst við að því að þetta hefði ekki verið raunverulegt.
Ég er ekki búin að átta mig á þettu alveg ennþá ... en þetta er að síast inn!
Fréttirnar eru að byrja núna, verð að fara og fylgjast með íslensku fréttariturunum segja frá atburðunum ....



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home