Karate
Í gærkvöldi fórum við Már í jólaglögg Þórshamars. Mér þykir mjög vænt um þetta karatefélag og fólkið í því. Í hvert skipti sem ég stíg fæti þar inn, steypist nostralgían yfir mig og mig langar að byrja að æfa aftur ... en ég hef aldrei tíma!
Nú eru liðin 4 ár síðan ég hætti alveg að æfa hjá þeim og ég sneri mér að magadansinum. Ég hef nú reyndar verið mjög dugleg að mæta í karate-partýin á undanförnum árum, svo að fólk sem hefur byrjað að æfa síðan ég hætti, þekkir mig sem góðvin félagsins og ég er enn "í klíkunni".
Það er alltaf jafnhlýleg móttakan sem ég fæ þegar ég mæti í félagið, fólkið þar er yndislegt og það hefur alveg áhrif á það hversu vel mér líkar íþróttin.
Ég hef ákveðið að byrja að æfa aftur um mánaðamótin janúar-febrúar 2005 (þegar ég er bara í einnu verkefni), einu sinni í viku til að byrja með. Ég treysti mér ekki til að fara of geyst í æfingarnar, né vil ég heldur fórna neinum af tímanum sem frátekinn er fyrir magadansinn!
Ég hlakka mikið til að fara að æfa styrkjandi íþrótt, í góðum félagsskap, á nýju ári!



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home