Fyrri lokatörnin að hefjast!
Jæja, þá er fyrri lokatörnin að hefjast hjá mér.
Hún hófst í rauninni í dag með öllu stússinu í kringum ljósmyndatöku í Þjóðleikhúsinu, á búningum og sminki allra karaktera Mýrarljóss, verksins sem ég er að vinna í þar í þetta skiptið. Stússið var mikið, en fyrir myndatökuna varð náttúrulega að klára alla þá búningavinnu sem ekki var búin í morgun .... og, úfff, það var slatti!
Mikið rosalega hlakka ég til að sjá verkið á frumsýningu, en ég hef svo mikla trú á því. Edda Heiðrún Backmann leikstýrir verkinu ásamt Jorgosi frá Grikklandi.
En Thanos, hönnuðurinn sem ég vinn með, kemur líka þaðan og vinna þeir tveir oft saman sem "team". Og mikið ofboðslega er hann Thanos hæfileikaríkur, skemmtilegur og yndislegur maður. Hann er mikið dáður og dýrkaður í húsinu af hreinlega öllum í öllum deildum, hann hefur eitthvart lag á að taka alla með sér í hughrifum sínum og fólkið í kringum sig að þátttakendum í hughrifunum ... svo setur hann sig ekki á hærri stall en aðra, nema að hann þurfi þess ... æ, hann er æðislegur.
Enn er þó nokkurra daga vinna eftir áður en mínum þætti í búningagerð verksins er lokið, en svo verður frumsýningin ekki fyrr en 10. eða 12. febrúar (ég man ekki hvort!) ... þá verður þessarri lokatörn endanlega lokið.
En eftir þessa lokatörn kemur þó önnur, og að þessu sinni verður hún hjá Sögusafninu. En þaðan verða 6 búningar á fræga norska víkinga-höfðingja, sem ég ber ábyrgð á, sendir til Noregs um mánaðamótin febrúar-marz og geri ég þá alla sjálf frá A-Ö ... lita, spjaldvefa, sníði, sauma, handsauma, bródera og sjúska ... úfff!
Svooooo fer ég loksins að vinna á fullu á vinnustofu sem ég er að koma mér fyrir á hjá tveimur öðrum textílhönnuðum. Og hver veit nema að söluvörurnar frá mér fari að gægjast í verslanir með haustinu ... ég lofa þó engu ennþá.
En það er svo líka svo margt annað spennandi framundan:
karate í febrúar, löng utanlandsferð og heimsóknir að utan í vor, samsýning okkar í TVÍD (hönnunar-/listasýning) í sumar/haust, magadanskeppni- og æfingabúðir í haust, mögulega spennandi leikmynda-og búningahönnunarverkefni snemma á næsta ári ... og hver veit, kannski kemur bara annað barn hjá okkur Má líka einhverntíman á 2006!
Æ, best að halda sér samt á jörðinni, ég verð að fara bráðum að sofa svo að ég hafi næga orku í að klára að "patinera" í Þjóðleikhúsinu á morgun.
Góða nótt.



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home