Meðganga og nýtt ár!
Er búin að vera svolítið upptekin undanfarið og því ekkert skrifað lengi ... en annars er ástandið núna bara orðið "scary", nýtt ár komið og bara 10 vikur eftir af meðgöngunni, og bara 8 ef þetta verður eins og með Garp ... er ekki hægt að stoppa tímann eitthvað núna?
Allavegana, þá líður mér vel. Bara orðin svolítið stór á methraða ... man ekki betur en að ég hafi verið að kvarta yfir því að vera með enga kúlu fyrir nokkrum vikum og núna er ég orðin jafnstór og ég var undir það síðasta með Garp!
Það tekur smá tíma að venjast því að geta ekki staðið uppúr sófanum eða bílnum átakalaust, geta ekki aukið hraðann þegar maður er á göngu, geta ekki skokkað upp stiga, geta ekki haldið á nema tveimur innkaupapokum í einu eða sest upp í rúminu án þess að velta sér á hlið fyrst ... þetta er stundum bara kómískt þegar maður er eitthvað að reyna.
Svo verður þetta ástand bráðum búið ... þannig að það er um að gera að njóta þess bara að vera í annarlegu ástandi í nokkrar vikur í viðbót í friði, því bráðum verður svo mikið að gera að maður á ekki eftir að geta hugsað skýrt.
Ó, ÉG HLAKKA SAMT SVO TIL!
Ég er að deyja úr spennu!
Kannski líður mér að einhverjum hluta svona vegna þess að mér finnst leiðinlegt að jólin séu að verða búin og mig langar í einn pakka í viðbót ... og ég get ekki beðið eftir því að sjá hver þessi litli einstaklingur inní mér er!!!



2 afskipti:
sæl
Kristína
Ég hef nú ekki séð þig síðan ég kom heim en ég vona að jólin og áramótin hafi verið ánægjuleg.
við sjáumst núna á nýju ári, hlakka til að sjá kúluna
Guðný
Ó þakka þér fyrir Guðný Stella, þetta voru draumajól og-áramót, hefðu ekki getað verið ánægjulegri.
Hlakka til að sjá þig líka, enda langt síðan við höfum hittst. Það verður gaman að heyra allar sögurnar úr reisunni þinni!
Sjáumst von bráðar í magadansinum ... það verður allavegana ekki erfitt að "spotta" mig, því get ég lofað!
Post a Comment
<< Home