Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Monday

kennsla, nám og jólaundirbúningurinn hafinn

Um þessar mundir er ég að fást við, meðal ótal margs annars, kennslu og nám.

Annars vegar var ég með námskeið þar sem ég var að kenna menntskælingum leikmynda-og búningahönnun núna um helgina. Það var æðislegt, mig langaði nánast að verða menntskælingur aftur ... það var svo gaman í MH á sínum tíma, og í leikfélaginu, það fer alveg um mig við tilhugsunina!

Hins vegar er ég alveg að fara að klára ökunámið mitt!!! Ég fer í verklega ökuprófið núna á fimmtudaginn kl.11, og ég hlakka svo til að ég er að fríka út ... ég er líka pínu stressuð, ég gæti alveg klúðrað þessu ef ég læt stressið ná til mín, en mér þykir það samt ólíklegt!

Annars vorum við Garpur að föndra jólakortin í gær. Ég ákvað að taka þetta bara snemma í ár, þar sem að ég er venjulega alltaf of sein með svona lagað ...nú eigum við ótrúlega mikið af flottum jólakortum sem bíða þess að vera send í desember!
Kannski að við Garpur tökum bara jólabaksturinn næstu helgi, eða föndrum aðventukrans, svo langar mig að gera handa honum jóladagatal eins og ég átti þegar ég var lítil!

2 afskipti:

At 11/02/2005, Anonymous Anonymous said...

Gangi þér vel á ökuprófinu elsku fræka... þ.e.a.s. ef þú manst þá eftir að fara í prófið!! ;D
þín ávallt
Magga mold

 
At 11/02/2005, Anonymous Anonymous said...

frænka átti það að vera ekki fræka

 

Post a Comment

<< Home