"Litla barnið" lætur vita af sér!
Undanfarið hef ég verið farin að örvænta vegna þess að ég fann ekki ennþá fyrir reglulegum hreyfingum, og mér fannst ég ekki vera að stækka nógu mikið til að finnast þetta ástand vera "alvöru".
Í gærkvöldi fór ég mjög snemma í rúmið, þegar ég var lögst útaf, hófst loksins langþráð ballið í maganum á mér. Ég fann stöðugt fyrir hreyfingum þangað til að ég sofnaði. Svo vaknaði ég í morgun við það að legið varð grjóthart ... samdráttaræfingarnar hjá mér eru hafnar! Nú er þetta ástand loksins orðið alvöru aftur.
Stína, kona eigi einsömul



1 afskipti:
Hæ Stína mín og bumbubúi.
Ég er forvitin, eruð þið búin að fá að vita kynið? :o)
Kv. Arnheiður
Post a Comment
<< Home