Hjartsláttur og hreyfingar
Mamma skoðaði mig í gærkvöldi með dopplernum (hjartsláttarhlustunargræjunni) ... það var svo yndislegt að heyra þennan litla, hraða hjartslátt í fyrsta skipti. Þetta er svo fallegt hljóð, ég hefði getað hlustað á það endalaust.
Fyrir nokkrum dögum fannst mér ég líka finna fyrir hreyfingu í fyrsta skipti, en ég var skeptísk þar sem að ég var þá bara rétt komin tæpar 12 vikur, og síðast fann ég ekki hreyfingar fyrr en á 20.viku (þá var ég reyndar með framstæða fylgju, en núna er hún aftaní leginu).
Ég spurði mömmu um þetta og hún sagði að það kemur alveg fyrir að konur finni hreyfingar svona snemma. Síðan hef ég fundið fleiri hreyfingar, bara af og til, og nú er ég sannfærð um að þetta séu hreyfingar barnsins. Þetta er eins og að vera með lítinn fisk með stórum sporði, kippast til inní sér.



1 afskipti:
Gaman að fylgjast með þér frá upphafi þessarar meðgöngu ;) Sérstaklega gaman með það í huga að þá rifjast upp fyrir mér líka það sem var í gangi hjá mér fyrir nokkrum mánuðum síðan... gott að fá áminningu ;)
P.s. magadanshreyfingarnar frá námskeiðinu forðum daga hjálpuðu geggjað til við fæðinguna!!! Hilmir var fastur uppí grind heillengi og ég var hvött til að standa eða húka frammi til að hjálpa til.. ýmiskonar sveiflur og shimmýið kom mér í gegnum verkina :)
Post a Comment
<< Home