Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Friday

Fjallgöngugarpur

Í gær fórum við í svakalega ævintýrferð. Við Már fengum pössun fyrir Garp í bænum og fengum svo far, ásamt Ölla, Guðnýju, Robba og Hrafni, á Björgunarbáti Siglufjarðar til eyðifjarðarns Héðinsfjarðar. En Héðinsfjörður er einn fallegasti staður sem ég hef augum litið á Íslandi.

Báturinn lagði af stað klukkan 9 um morguninn, þannig að það var töluvert stress að redda öllu fyrir það, en þegar í bátinn var komið, tók ævintýrið við.
Fyrst sigldum við útúr Siglufirði og framhjá hinu afskekkta Siglunesi, en þar var búið lengi vel og kirkja fjarðarins var meira að segja staðsett þar um aldarmótin 1900, þó að einungis sé hægt að komast þangað á báti eða hálfsdagslangri göngu! Svo fórum við framhjá litlum dal sem heitir Nesdalur og svo beygði báturinn fyrir Hestsfjall og inní Héðinsfjörðinn. Á austurhlið Hestsfjalls, var okkur bent á grænan kross sem hefur nýlega verið settur í miðja fjallshlíðina til að minnast mannskæðasta flugslyss Íslands sem átti sér stað þar í kringum 1960. Að lokum komum við og báturinn skildi okkur eftir hjá björgunarskýlinu.

Veðrið var fallegt í Héðinsfirði í gær og við nutum okkar vel þar í blíðunni. Við gengum um fjörðinn, skoðuðum rústir, lékum okkur á ströndinni, Ölli fræddi okkur um hinar ýmsu gerðir skelja, svo grilluðum við.
Már gat ekki hugsað sér að grilla á einnota grillinu sem hann hafði sjálfur haft svo mikið fyrir því að kaupa fyrr um morguninn, heldur urðum við að kveikja bál, og búa til grill úr því sem við gátum fundið í kringum okkur ... Má tókst það með prýði, þrátt fyrir mikil mótmæli í okkur hinum, í lata meirihlutanum.
Eftir matinn urðum við að vaða yfir ósinn (kalt), og svo var ferðinni haldið heim, yfir eitt stykki fjall!

Fjallgangan gekk hægt en vel ... og mikið var ég fegin að hafa fleira fólk, sem er hægfara eins og ég, með í för. Gangan upp Héðinsfjarðarmegin var erfið til að byrja með, en svo léttist á henni þegar ofar dróg og við fundum stígana sem zikkzakka upp fjallið. Við stoppuðum oft á leiðinni, nörtuðum í eitthvað og Ölli fræddi okkur um liðna atburði og sagði okkur sögur. Efst uppí Hestskarði stóðum við svo í rokinu á milli fjarðanna og horfðum austur í Héðinsfjörð og vestur í Siglufjörð til skiptis ... það var alveg magnað!
Leiðin niðrúr Hestskarðinu Siglufjarðarmegin gekk hraðar fyrir sig ... en hún var ekki alveg eins skemmtileg, það byrjaði að rigna smá á okkur og svo vorum við öll orðin svo þreytt að við stöppuðum ekki eins oft og töluðum lítið. Örmagna stauluðumst við niður í Skútudal og fundum bílinn sem Ölli og Guðný höfðu lagt þar um morguninn.

Við vorum komin heim um sjöleitið, rétt í tæka tíð til að sækja Garp, skipta um föt og koma okkur í matarboð til Önnu og Áma klukkan hálfátta.

Þetta var nú meiri ævintýraferðin!

0 afskipti:

Post a Comment

<< Home