Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Wednesday

Logi Garpur 3 ára!!!

fyrir og eftir

Garpur átti afmæli í dag og dagurinn var alveg yndislegur. Í fyrsta lagi, þá lék veðrið við okkur hér í fríinu okkar á Siglufirði, svo gekk allt annað bara vonum framar ... eins og venjulega.

Dagurinn byrjaði á því að Garpur skreið uppí rúm til okkar Más kl.7 og tilkynnti okkur að hann ætti afmæli í dag ... smá sjokk fyrir mig þar sem að ég ætlaði að vakna á undan honum og koma honum á óvart með afmælislummum. En í staðin fékk Garpur bara að hjálpa mér að blanda deigið og hræra í því. Svo var hann sendur upp í sparifötin og mátti ekki koma niður fyrr en ég kallaði í hann.
Það sem blasti við drengnum þegar hann kom niður, voru pabbi og mamma að syngja afmælissönginn í eldhúsinu, lummustafli með þremur logandi afmæliskertum í, heitt kakó og afmælispakki frá okkur. Hann brosti feimnislega þegar hann fikraði sig niður stigann, í sætið sitt og blés svo á öll kertin svo það slokknaði á þeim í einu!
Í afmælispakkanum frá okkur Má var stór gulur gúmmíbolti með andliti og tveimur fálmurum, sem maður á að halda sér í, sitja á, hoppa og ferðast um á ... sá var náttúrulega prufukeyrður helling úti, eftir morgunmatinn ... meira að segja sem fótbolti!

Næst á dagskrá var að fara í afmælisbátssiglingu. Við gengum að bátahúsinu þar sem við hittum Ölla afa og Hrafn frænda. Við Garpur og Hrafn fengum björgunarvesti, Ölli kom með mótorinn á bátinn áður en hann fór í vinnuna, svo fórum við, hin fjögur fræknu, í frábæra siglingu.
Við sigldum langt út í fjörðinn og reyndum aðeins að veiða á færi, en það gekk ekkert voða vel hjá okkur, svo kynntumst við skemmtilegum fýlum (fuglinn fýll) sem sóttust eftir félagsskapi okkar ... við gátum ekki ákveðið hvort þeim fannst við vera svona frábær að vilja vera memm, eða hvort þeir væru bara að reyna að finna ástæðu til að æla á okkur, þeir fundu hana að minnsta kosti ekki!
Þegar yngri piltarnir voru farnir að skjálfa af kulda var svo snúið við og haldið heim í höfn.

Eftir smá svefntörn hjá þeim feðgunum, var svo haldin vegleg afmælisveisla til heiðurs honum Loga Garpi Mássyni, 3 ára. Í veisluna komu góðir gestir: Ölli afi og Hrafn frændi, Ásdís kennari og tvö skemmtileg barnabörn hennar, Guðrún, kunningjakona okkar Más, og Pétur sonur hennar ... sem er líka þriggja ára. (Guðný amma og Hildur frænka komust því miður ekki vegna þess að þær fóru til Reykjavíkur til að vera hjá Róberti, afa Hrafns og Hildar).
Í afmælisveislunni var mikið borðað og leikið úti, leiknir voru ýmsir boltaleikir, krakkarnir gæddu sér á vínberjum, kjötbollum og flatkökum með hangikjöti, svo stýrði Garpur leik sem hann fann uppá sjálfur sem kallast "hættulega hreindýrið", leikurinn byggist á því að Garpur leikur það að hann sé með hreindýrahorn á höfðinu með báðum höndum, urrar, eltir gestina og reynir að stanga þá ... sem betur fer var lítið af slysum, enda afmælisbarnið yngsti einstaklingurinn í veislunni. En allir skemmtu sér konungleg yfir þessu uppátæki, en það var mikið hlegið.
Eftir neyslu nógu mikillar hollrar fæðu og næga hreyfingu var haldið inní hús þar sem að afmæliskakan var upplýst ásamt fleiri kræsingum. Afmælissöngurinn var sunginn og Garpur stóð sig, í annað skiptið í dag, vel í að blása á kertin þrjú.
Veislan tókst stórvel, gestirnir voru frábærir (Garpur var mjög sáttur við fjölda krakka í afmælinu), og gleðin og þreytan var mikil í lok dags þegar allt var yfirstaðið.

Í dag fékk Garpur líka tvö símtöl frá ömmum sínum sem óskuðu honum til hamingju með daginn. Fyrst talaði hann við Völu ömmu sína sem býr í Englandi og svo við Ingu ömmu sína sem er að passa húsið okkar í Stangarholti, en hann mun hitta þær báðar þegar hann kemur suður eftir sumarfríið og halda með þeim aðra fína afmælisveislu með mörgum, mörgum krökkum. (Fyrir sumum eru það pakkarnir sem skipta máli, fyrir Garpi er helsta áhyggjuefnið að það sé örugglega nóg af krökkum í veislunni!)

Dagurinn í heild sinn var alveg frábær, og Gapur fór örmagna og brosandi í rúmið í kvöld ... ég held ég hafi mátt ráða af því brosi að það hafi verið gaman að vera þriggja ára strákur í dag!

1 afskipti:

At 7/14/2005, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með afmælið Garpur, þú skilar því fyrir mig Stína!

 

Post a Comment

<< Home