Réttarhöldin í Kanada
Nú fyrir nokkrum stundum síðan var réttarhöldunum, þar sem réttað var í máli K, konu Davíðs bróður míns, að ljúka.
Málið snerist um að K endurheimti forræðið yfir C, eldri syni sínum (4 ára), en móðir K rændi dóttur sína forræðinu og hefur barátta hennar og allra þeirra sem standa með henni, staðið nú í rúm tvö ár.
Í grunninn er niðustaða dómarans í þessum síðari réttarhöldum jákvæð, K hefur hlotið óafturkræft forræði yfir syni sínum (svona eins og foreldrar hafa venjulega "by default"), og fjölskyldan litla er auðvitað í skýjunum yfir því.
Sem betur fer eru fréttirnar að mestu góðar, þær skýla á vondu fréttirnar sem eru smávægilegar í samanburði við hinar. Vondu fréttirnar eru þó þær, að næstu mánuðina, á meðan að aðlögunartíminn gengur í garð, hefur vonda amman töluvert mikinn heimsóknarrétt ... þetta er slæmt vegna þess að amman hefur hingað til verið óútreiknanleg og brögðótt, en lögin standa hinsvegar með litlu fjölskyldunni og ef að amman tekur feilspor, mega þau láta endurmeta heimsóknartímana!
Allavegana, ég er svo ánægð að ég er að springa úr hamingju. Nú er þungu fargi af allri fjölskyldunni létt!
Mamma fór til Kanada til að vera hjá þeim á meðan réttarhöldin stæðu yfir og kemur heim eftir rúma viku og ég fer út til Davíðs og co. um mánaðamótin apríl/maí nk. og get ekki beðið.
Góðar stundir og góða nótt,
Kristína stolta föðursystirin.



1 afskipti:
FRÁBÆRT!
Gaman að lesa þessar fínu fréttir og loks virðist ætla að koma góð lending í þessu mjög svo leiðinlega máli. Til hamingju Davíð et al!
Ég er ekki duglegastur manna að lesa dagbólkina á vefnum, en ef það eru alltaf svona góðar fréttir þá verð ég að koma oftar í heimsókn.
Bestu kveðjur, Stefán Ingi.
Post a Comment
<< Home