Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Wednesday

Gott að vera í fríi

Við lögðum af stað í rútunni til Siglufjarðar á sunnudagskvöldinu sl. í þvílíku roki að ég hélt nokkrum sinnum að rútan mundi enda útí sjó eða uppí fjallshlíð. Þegar leið á ferðina linnti rokinu en þokan varð svo mikil að við sáum ekkert útum gluggana. Mikið var ég fegin þegar við komum svo loksins til Varmahlíðar.
Þar beið "Ölli afi" (eins og Garpur kallar hann) eftir okkur, og hann keyrði okkur til Siglufjarðar í Seby-húsið, þar sem "Guðný amma" passaði sofandi Garp á meðan að við Már skruppum á Kríustaði að fá okkur í svanginn fyrir svefninn.

Undanfarnir dagar hafa svo verið yndislegir og veðrið hefur verið gott, þó að skýin séu stunundum heldur lág á lofti. Garpur á það til að fara með hinum og þessum ættingjunum sínum og sjást ekki aftur fyrr en löngu seinna, svangur og þreyttur. Hann hverfur stundum með 10 ára frændsystkynum sínum, þeim Hrafni og Hildi, hann sér ekki sólina fyrir þeim og gerir allt fyrir þau. Stundum hverfur hann líka með Ölla afa eða Guðnýju ömmu, þá á hann það til að enda á Kríustöðum og kemur heim með sögur af skemmtilegum leikjum og andarungum (en Ölli afi er andarmamma nokkurra 2 vikna andarunga um þessar mundir).

Siglufjörður iðar nú af lífi. Í dag verður Þjóðlagahátíðin sett í fimmta sinn og á næstu dögum má hér hlíða á lifandi tónlist af ýmsum toga og sækja alls kyns námskeið. Mig langar rosalega að sækja námskeið í "söfnun jurta og matreiðslu þeirra" hjá Hildi Hákonardóttur, en hún kenndi mér í Listaháskólanum og mér finnst hún vera gull af konu.

Annars eigum við von á gestum á meðan við erum hér, Svavar Knútur kemur til okkar á morgun til að vera hér á Þjóðlagahátíðinni, mamma ætlar líklega að kíkja í heimsókn og kannski meira að segja hann Óðinn, vinur hans Garps (Móu og Ragga sonur). Það er öllum velkomið að kíkja við hjá okkur hér í Seby-húsinu og þiggja hjá okkur gistingu, eigi það leið hér um!

Mér líður svo vel að vera komin hingað í frí. Þetta er líka alveg frábært frí, maður er að lifa lífinu og vera til, en það er ekkert stress neins staðar í sjónmáli, bara sól og blíða.

0 afskipti:

Post a Comment

<< Home