Kona einsömul!
Við Már höfum ákveðið að hefja tilraunir við að eignast næsta barnið okkar.
Þetta er ekki eins auðvelt og ég hélt að það væri. Síðast þegar við tókum þessa ákvörðun, vorum við varla búin að melta hana þegar Garpur var kominn undir .... í þetta skiptið eru hins vegar liðnar sex vikur núna, og ég er orðin óþolinmóð núþegar.
Ég geri mér grein fyrir því að það er eðlilegt að biðin taki marga mánuði, en ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað ég yrði óþolinmóð um að verða ólétt. Innst inni vil ég að þetta takist hjá okkur strax í fyrstu tilraun, þó að það sé vissulega gaman að æfa sig og reyna.
Ég finn líka að ég verð úrillari og geðvondari þeim mun lengri sem tíminn verður og ekkert gerist, ég veit ekki hvers konar skrímsli ég verð orðin undir lokin.
Vinkona mín sem reyndi í nokkra mánuði sjálf áður en barn var komið undir beltið hjá henni, sagði mér að þetta væri spurning um að vera nógu afslöppuð og kærulaus ... vera alveg sama um það hvenær það komi, þá kemur það .... það er bara meira en að segja það hjá mér, ég er svo spennt!
Kannski mun ég aldrei eignast fleiri börn!!!



2 afskipti:
Mæli með hitamælaaðferðinni... tókst þannig hjá okkur eftir þriggja mánaða æfingarbúðir ;)
Ég var víst orðin ólétt þegar ég bloggaði þetta, það hafði bara ekki komið fram á þungunarprófi ennþá!!!
Post a Comment
<< Home