Slökun á Siglufirði
Ó ég hlakka svo til að fara í sumarfrí og slaka á. Við leggjum af stað á morgun í mánaðarfrí til Siglufjarðar þar sem að við fáum að vera í Sæby-húsinu hans Örlygs alveg útaf fyrir okkur.
Ég lít á fríið í hyllingum núna, enda eru síðustu vikur búnar að vera "too much" fyrir mig, nokkrar svefnlausar vinnutarnir á Vinustofunni vegna fatalínunnar minnar fyrir Verksmiðjuna, heavy magadanskennsla, undirbúningur undir "Handverks og Hönnunar" sýninguna, og svo hef ég verið að vinna af mér sumarfríið í búðinni, þannig að ég hef verið frekar mikið þar undarnfarið ... úff álagið er að fara með mig ... eftir sumarfríið mitt kikkar svo inn nýtt vinnuskipulag sem ég hannaði fyrir sjálfa mig svo að ég lendi ekki í fleiri svefnlausum nóttum og kannski að ég ráði mér þá líka bara eitt stykki saumakonu til að gera það sem ég eyði allt of miklum af dýrmæta tímanum mínum í að gera, sauma og klippa snið!
Í dag verður frekar rólegur laugardagur, hjá mér, bara planað að hringja í Tengdó til Englands, kenna einn magadanstíma, mæta á opnun "H&H"sýningarinnar , heimsækja Kela og Sirrýju og nýja barnið þeirra, taka svo til og pakka heima í rólegheitum í kvöld fyrir fríið. Svo förum við norður á morgun!!!



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home