Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Thursday

Fjölgar í fjölskyldunni

Æ, ég get ekki þagað lengur (svo held ég að það séu ekki svo ýkjamargir sem lesa þetta blessaða blogg mitt): það er barn á leiðinni hjá okkur Má!
Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart, við höfum talað mjög opið um það undanfarið að við séum að stefna á annað barn á næsta ári.

Ég er líka ekkert feimin við að segja frá því strax (líklega komin 5 vikur), en ég lít þannig á það að ef eitthvað kemur uppá og ég verð niðurdregin og dreg mig í hlé, þá veit fólk hvað er að gerast, veitir mér kannski stuðning sem ég þarf ekki að biðja um og ég þarf ekki að útskýra neitt .... nenni allavegana ekki neinu leynimakki.
NEMA, við Már höfum ákveðið að bíða með að segja Garpi frá, það getur verið erfitt fyrir svona lítinn strák að bíða í marga mánuði, og ef eitthvað skyldi koma uppá þá viljum við ekki þurfa að útskýra það fyrir honum strax.

Allavegana, ég er ótrúlega róleg yfir þessu öllu saman (ólíkt síðast), veit að biðin er löng og hlakka bara til að njóta meðgöngunnar og allra þeirra kosta og galla sem henni fylgja.

Er reyndar núþegar farin að verða aum í sívaxandi brjóstunum (sem minna svolítið á júllurnar hennar Ann Nicole Smith þessa dagana) ... held meira að segja að ég finni fyrir mjólkurkyrtlunum!
Af og til finn ég líka eins og vægan rafstraum á móðurlífssvæðinu (sem ég kannast ekki við síðan síðast).
Og tilfinningasveiflurnar eru strax farnar að láta segja til sín. Ég fór næstum því að skæla fyrir framan hóp af fólki í dag þegar ég þurfti að kynna mig, mér fannst þetta vera eitthvað svo "fallegt og tilfinningaþrungið móment" .... og ég veit að þetta er bara byrjunin á þessarri rússíbanaferð sem er hafin!

7 afskipti:

At 7/08/2005, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju elsku Stína og Már. Ég er alveg að fíla það að segja strax frá. ; )

 
At 7/08/2005, Anonymous Anonymous said...

I am so very happy for you! I hope this pregnancy will be smooth and trouble-free. Take care, and thanks so much for sharing. :) Marcia

 
At 7/09/2005, Anonymous Anonymous said...

Hjartanlega til hamingju með bumbubaunina...
kv
Fífa Zahira

 
At 7/09/2005, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju!!!

Nú getum við allar farið að prjóna barnaföt í saumó!!

 
At 7/10/2005, Anonymous Anonymous said...

Sæl, Kristína mín.

Ég óska ykkur öllum innilega tilhamingju með þessar frábæru fréttir og ég veit að Garpur verður voðalega hamingjusamur með að eignast lítið systkyni.
Ég virkilega vona að þetta eigi eftir að vera góðir mánuðir og að þú og Már eigi eftir að njóta þess mikið saman og einnig Garpur þegar að því kemur.
Ég óska ykkur alls hins besta með fyrstu mánuðina.
Kveðja,
Heiða.

 
At 7/10/2005, Anonymous Anonymous said...

Æi til hamingju! En frábært :) Gott hjá ykkur að vera ekkert að laumupúkast ;)

 
At 7/12/2005, Anonymous Anonymous said...

Innilega til hamingju! Æðislegar fréttir, vonandi gengur þetta allt jafn vel og síðast! :-)

 

Post a Comment

<< Home