Síðasti dagur tveggja ára Garps!
Garpur er búinn að vera svo spenntur alltof lengi útaf afmælinu sínu ... í gær þegar ég var að útskýra fyrir honum að það væru tveir dagar í það, reyndi hann að sannfæra mig um það að hann væri löngu búinn að eiga afmæli.
Í nótt gisti hann svo hjá Ölla afa og Guðnýju ömmu sinni, við Már hringdum í hann í morgun og spjölluðum smá við hann, þegar ég sagði honum að hann ætti afmæli á morgun, sagði hann hátt og skýr "já, og allir krakkarnir koma í afmælið mitt" ... ég vildi ekki vera að svekkja greyjið, en ég veit ekki alveg hvað það verða margir krakkar í afmælinu ... við verðum að halda veglega barnaafmælisveislu handa honum þegar við komum aftur suður!
Annars verður örugglega gaman hjá okkur mæðginunum að baka saman í dag og undirbúa afmælið á morgun ... Garpur er búinn að lofa að hjálpa til.



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home