Nýútskrifaður grasnytjungur
Er nýbúin að ljúka tveggja daga námskeiði í jurtatínslu og matargerð með Hildi Hákonardóttur og er alsæl með afraksturinn. Ég lærði svo mikið á þessu námskeiði, sérstaklega bara á því að hlusta á Hildi og átta mig á lífsviðhorfum hennar ... og aðlaga mínum lítillega í hennar átt, svona endurskoða eða endurnýja þau.
Námskeiðinu lauk með veglegu matarboði eftir fína hóptínslu. Þar var á boðstólnum: fíflasalat með hundasúrum, kerfli, tómati og fetaosti, djúpsteiktir fíflahausar og kerfilbómhnappar, bygggrjónakássa með ætihvönn og njóla, kavíarfylltir hvannarstönglar, villijurtasósa með hundasúrum, harðfiskur með söli og gulrótum og fleira og fleira ... og þetta var allt alveg rosalega gott!
Nú er bara að reyna þetta sjálf heima, verst að við erum nýbúin að eitra í garðinum okkar ... þannig að ég þarf að leita í annarra manna garða sem eru komnir í órækt!



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home