Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Tuesday

All is good that ends well!

Í fyrrakvöld byrjaði að blæða aðeins hjá mér ... þetta var nú frekar lítið og þessu fylgdi enginn verkur.
Ég var ekki viss hvort ég ætti að vera róleg og yfirveguð yfir þessu, láta það líða hjá og vona bara það besta, eða hvort við Már ættum að undirbúa okkur undir það að vera mögulega að missa fóstrið.

Ég hringdi í mömmu (ljósmóðurina mína), og hún sagði mér að vera róleg. Hún sagði að á þessu tímabili er fylgjan að grafa sig inní legvegginn og að smáblæðing væri bæði algeng og eðlileg. Hún sagðist líka munu kíkja á mig þegar ég kem suður.
Mér var strax létt, en hafði hins vegar líka lesið á netinu um konur sem hefðu fengið nákvæmlega sömu einkenni þegar þær misstu fóstur .. inní mér panikkaði ég, þótt ég létist vera kúl, kannski vegna þess að ég verð ekki komin suður fyrr en eftir 10 daga!

Þannig að við Garpur skruppum saman á Sjúkrahús Siglufjarðar í morgun til að athuga hvort einhver vildi tékka á mér. Þar var læknir sem setti barasta upp ómskoðunaraðstöðu og kíkti á mig. Garpur var eins og engill, og sat í stól við hliðna á mér og leiddi mig á meðan.
Í ljós kom að ég geng með lítið kríli sem hefur hjartslátt!
Mér er svo létt ... þó að, eins og læknirinn var svo sætur að benda mér á, þetta sé náttúrulega engin trygging fyrir því að ekkert geti gerst ... þá er allavegana allt í orden akkúrat núna og lítur vel út.

Læknirinn bætti því við að samkvæmt stærðinni í fóstrinu, þá er ég ekki gengin nema um 6 vikur (en ekki 7-8, eins og ég hélt). Mér er náttúrulega alveg sama, á meðan allt lítur vel út, þá er ég sátt ... : )

1 afskipti:

At 7/20/2005, Anonymous Anonymous said...

Úff.. gott að allt lítur vel út :o)
Ég veit nú um nokkrar sem hefur blætt hjá og allt verið í lagi.. þannig að ekki fara að panikka!!
Gangi ykkur vel dúllan mín.

 

Post a Comment

<< Home