Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Thursday

Hvar er ógleðin mín?

... á ég ekki rétt á henni?

Ég bara skil þetta ekki, mér er enn ekkert farið að verða ógeðslega óglatt, ekkert farin að gubba á klukkutíma fresti ... og líður bara hreint ágætlega! Kannski er eitthvað að?
Jæja, brjóstin eru þó enn stór og helaum, og ég brest í grát yfir Everwood, þannig að kannski er allt í góðu?

Vona þó að ógleðin fari að láta á sér bera fyrr en síðar, langar ekki að eiga hana eftir og að hún ákveði að láta mig finna fyrir sér þegar ég er komin á kaf í vinnu.

Ok, allir að leggja sitt af mörkum við að óska þess að ég fái svæsið ógleðikast sem fyrst :)

0 afskipti:

Post a Comment

<< Home