Sónar

Við fjölskyldan fórum í sónarskoðun á Kvennadeild Landspítalans í dag til að ganga úr skugga um að allt sé í góðu vegna blæðinganna sem hafa ekki stoppað hjá mér í tvær vikur.
Allt er í góðu, læknirinn fann það sem orsakaði blæðingarnar í leggöngunum og fjarlægði vandamálið ... mér er loksins endanlega létt og alveg hætt að hafa áhyggjur.
Samkvæmt nýjustu mælingum er ég sett 7.marz, og er því komin 8 vikur og 4 daga í dag!



1 afskipti:
Frábært að sjá að allt sé á réttum stað og í góðu gengi ;) Bíð spennt eftir næstu sónarmynd !
Post a Comment
<< Home