Lífið að komast í samt horf aftur
Jæja, þá er allt að verða næstumþví "venjulegt" aftur eftir sumarfríið og ömmuheimsóknina frá Englandi.
Þetta hefur heldur betur verið ævintýralegt sumar, þá sérstaklega fyrir hann Loga Garp.
Eftir Siglufjarðarheimsóknina góðu, komum við suður og Vala (tengdó) kom í heimsókn frá Englandi. Þá var Inga (mamma) líka heima hjá okkur, en hún býr hér á meðan hún er að finna sér eigið húsnæði. Þannig að það var heldur betur fjör hjá mínum með tvær ömmur á heimilinu í rúma viku, og núna þarf hann að sætta sig við að hafa "bara eina".
Greyið litla, og nú er hann líka að sætta sig við það að leikskólinn er kominn aftur til að vera, en helst vill hann vera heima hjá mömmu og pabba eins og í sumar, og er ekki alveg að fatta að við þurfum öll að fara í vinnuna á daginn! Ó, það er svo erfitt að vera lítill stundum. En það fyndna er, að svo vill hann ekki koma heim á daginn eftir leikskólann, því það er svo gaman ... vonandi þýðir þetta bara að hann á bara svona erfitt með að skipta um umhverfi vegna þess að honum líður vel þar sem hann er hverju sinni ... ?
Annars er ég líka að komast í gírinn eftir sumarfríið ... það er bara verst að með þessarri meðgöngu fylgir svo mikil þreyta að ég á í mesta basli við að koma mér á fætur og í vinnuna. Svaf td. frá kl.21 í gærkvöldi til kl.07 í morgun, ætlaði ekki að trúa því að ég þurfti að draga sjálfa mig á fætur eftir 10 tíma svefn ... nú er klukkan ekki orðin nema 10 og mig langar aftur í rúmið!
Æ, orkan hlýtur að koma með haustinu og þá verð ég vonandi ofvirk .. þarf pínulítið á því að halda!
Stína viðutan.



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home