Líður betur
Þetta er allt að koma hjá mér ... ég er eiginlega alveg hætt með ógleðina og þreytan er að dvína. Ég er svo hamingjusöm vegna þess að ég er farin að geta verið virkari í umhverfi mínu, í saumaklúbbnum, magadansinum, vinnunni .. á heimilinu!
Mamma er að sjálfsögðu ljósmóðirin mín, og mun skoða mig heima ... mér finnst svo frábært að geta haft þetta svona, þá þarf ég eiginlega aldrei að fara í bókaðan tíma niðrá mæðravernd ... þetta er bara lúxus!
Annars er ég reyndar komin með einhverja flensu núna, en mér er alveg sama, ég er þó allavegana ekki blanda henni saman við meðgöngueinkenni ... ég hlýt að ná mér strax!
Magadansinn er allur að hrúgast inn til mín, menningarnótt frammundan, dans í 40ára tvíburaafmæli, brúðkaupsveislu og svo er ég að gera upp við mig hvort ég geti nokkuð keppt í Magadanskeppninni í ár ... veit það ekki alveg? (Æ, *glemdi* að tala ekki um magadans!)
Ó, þetta líf er eitthvað svo yndislegt!!!



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home