Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Thursday

Heimssýningin í Japan

Í gær var hringt í mig frá Útflutningsráði og mér boðið að taka þátt í Heimssýningunni í Japan, núna í september. Ég var svolítinn tíma að átta mig á því að konan í símanum meinti þetta í alvörunni og að það væri ekkert "catch".
Það sem um er að ræða er að ég setji upp sýningu af verkum mínum í Skandinavíska básnum á sýningunni, þar ætti ég svo líka að standa og vera með sýningu á vinnuaðferðum mínum.

Ég fór náttúrulega heim með fréttirnar, viss um að þetta væri kannski ekki eins spennandi í raun og veru, eins og mér fannst; að þegar ég kæmi heim þá yrði mér gert grein fyrir því að það væru engin tækifæri í svona ferðalagi.
Svo var það bara andstæðan, ég sem var búin að sannfæra mig um að þetta væri ekkert sniðugt (þó að ég iðaði í skinninu inní mér af spennu), sat þarna við eldhúsborðið, á meðan fjölskyldan varð æst og spennt og reyndi að sannfæra mig um kosti þess að kíla bara á það og drífa mig til Japan.
Það þurfti ekki mikla sannfæringu, ég er búin að ákveða að ég ætla að segja já ... en það er þó ekki þar með sagt að ég muni komast. Fyrst verð ég að útvega kynningargögn um mig og mín verk og svo verður norræna nefnd sýningarinnar að samþykkja mig.

Ef ég kemst, þá verður þetta algjör lúxus. Þó ég verði ekki á launum þarna úti, þá verður greitt fyrir ferðina og allt uppihald ....
... og nú er ég heldur betur orðin spennt, ég er kannski að fara á Heimssýninguna í Japan eftir mánuð, að kynna mig og mína hönnun í viku!!!

1 afskipti:

At 8/25/2005, Anonymous Anonymous said...

Vá það er frábært tækifæri! Til hamingju með þetta :)

Hófí

 

Post a Comment

<< Home