Leikhúsverkefni
Í fyrradag spurði Móa mig hvort ég væri til í að vinna með henni í leikhúsverkefni í haust, sem aðstoðarbúningahönnuður hennar í Nemendaleikhúsinu, en hún er ráðin sem leikmynda-og búningahönnuður.
Ég varð ekkert smá spennt ... mér hefur aldrei liðið betur í samstarfsverkefnum heldur en þegar ég vinn með Móu, þannig að ég er til í að leggja ýmislegt á mig til að fá tækifæri til þess aftur, meira að segja að vera undirmaður hennar.
Það er ekki víst að af þessu verði, fyrst þarf náttúrulega að fá formlegt samþykki frá Listaháskólanum. En bara það að Móa hafi beðið mig að vinna með sér, hefur komið mér í sæluvímu.
Það væri æðislegt að komast í svona verkefni, líka bara svo ég gleymist ekki alveg í leikhúsheiminum, ég hef ekki unnið í honum undanfarna mánuði og er náttúrulega að fara að eignast barn á næsta ári, svo að það væri ekkert mál að týnast og verða tröllum gefin í bransanum.
Vona að ég fái verkefnið ... :)



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home