Long time, no blogg
Vá, ég var alveg búin að gleyma því að ég væri einhver bloggari ... þetta gerist alltaf þegar mikið er af spennandi hlutum að gerast, þá hefur maður ekki tíma til að skrifa, svo þegar tími gefst til að setjast niður, þá hefur maður ekki frá neinu skemmtilegu að segja!
Helstu fréttir frá mér:
* Er komin 19v á leið ... og við förum í sónar nk. mánudag, þar ætlum við að fá að vita kynið ef hægt er, og segja öllum frá strax!
Annars finnst mér eg ekkert vera ólétt, það eru engin merkjanleg óléttueinkenni hjá mér lengur og mér finnst ég bara vera skemmtilega ólöguleg gella sem passar ekki í neitt, hvorki gömlu fötin mín né heldur í óléttuföt, og er einhvernvegin ekki almennilega ólétt. Gleymi því meira að segja stundum að það sé barn á leiðinni!
* Var loksins að fá sendingu af efnum sem ég pantaði frá Englandi, svo að ég er að fara framleiða restina af vetrarlínunni minni í Verksmiðjuna á túrbó-power-speed Í GÆR.
* Er að safna efni í, og semja fyrirlestur um "Textílhönnun á Íslandi í dag", ásamt Björgu Pétursdóttur textílhönnuði, en við flytjum fyrirlesturinn á Hönnunardögum Hönnunarvettvangs þann 11. nóvember, í nýjum fyrirlestrarsal nýju Laugardalshallarinnar. Svaka flott!
* Er að byrja að vinna með Móu í búningahönnun fyrir næsta verkefni Nemendaleikhússins í Borgarleikhúsinu "Þrjár systur" ... sem á að frumsýna 18. nóvember!
* Nýjustu fréttirnar eru svo þær, að ég var (loksins) að taka skriflega ökuprófið mitt í morgun. Ég flaug í gegnum það með 0 VILLUR ... og geri aðrir betur!
Á morgun fer ég svo að sækja tíma aftur hjá Njáli ökukennara eftir langt hlé, en ég hef verið í æfingaakstri með Má á bílnum hennar mömmu undanfarið. Svo reyni ég vonandi við verklega prófið fyrir mánaðarmót og verð jafnvel komin með bráðabirgðaskírteini fyrir áramót??!!



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home