Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Wednesday

16 vikur í dag

Það er svo margt sem á daga mína hefur drifið undanfarið og mig langar að skrifa um, en ég hef bara ekki haft tíma til þess; m.a. brúðkaup Maríu og Þórs, hönnunardagar í nóvember, vöruþróunin mín, magadanskeppnin, japanskt litunarnáskeið, leikmyndahönnunarkennsla ... o.fl. o.fl. ... og ég hef ekki tíma núna heldur ... :)

Allavegana, ég hef rétt tíma til þess að greina frá því að ég er gengin 16 vikur í dag, húrra!

Af síðunni ljosmodir.is:

Það er mögulegt að þú getir fundið hreyfingar fóstursins. Á þessu stigi geta hreyfingar líkst því að fiðrildi sé í maganum. Það er líka alveg eðlilegt þó að þú finnir ekki hreyfingar fyrr en eftir nokkrar vikur. Sárir stingir beggja veggna á kviðnum geta verið merki þess að liðbönd séu eitthvað farin að gefa eftir. Nú eru u.þ.b. 180 ml af legvatni og legið þitt er eins og blaðra full af vatni.

Liðamót fóstursins eru nú öll farin að virka og fóstrið getur vel hreyft fingur og tær. Táneglur eru rétt að byrja að myndast. Höfuðið er enn hlutfallslega stærra en restin af líkamanum sem nú vex hlutfallslega hraðar svo þetta á eftir að jafna sig. Dúnmjúk fósturhár eru byrjað að vaxa á líkama fóstursins. Fóstrið vegur nú um 110 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 11,5 sm.

1 afskipti:

At 10/10/2005, Anonymous Anonymous said...

Hæ, ég hef aðeins fylgst með blogginu þínu og meðgöngunni, vonandi gengur allt vel ;)

 

Post a Comment

<< Home