Fín helgi
Þetta er búin að vera fín helgi hjá okkur fjölskyldunni, þrátt fyrir það að Már er að vinna eins og geðsjúklingur þessa dagana og ég er eins og skotin rotta í dag af ólgeði.
Við Már og Garpur fórum hjólandi í Laugardalslaugina í gærmorgun, Garpur í nýja hjólavagninum. Það var æðislegt veður og rosa gaman, það er alltaf jafnmikil upplifun fyrir litla stúf að fara í sund með báðum foreldrum sínum. Svo hittir maður alltaf einhvern í laugunum, við hittum Örnu Ásudóttur í lauginni og Eddu Blöndal ásamt fleira karateliði þegar við vorum komin uppúr.
Á heimleiðinni sofnaði Garpur, náttúrulega örmagna eftir ævintýrið.
Þegar hann vaknaði var Már farinn í vinnuna, en við fórum með mömmu (Inguömmu) uppí Mosfellsdalinn í berjamó. Þar voru ber tínd og Garpur lék sér í móanum. Hann fór í "bóndaleik", þar sem að hann var bóndinn og ég var konan og svo sagði hann "heyrðu kona" við mig í gríð og erg ... saklaust meint vonandi, hann sagði þó allavegana ekki "heyrðu kelling"!
Eftir það ævintýrið, var haldið heim í mat, við borðuðum sveitaegg og sveitasalat sem við keyptum á sveitamarkaði í Mosfellsdalnum ... og svo auðvitað bláber og krækiber með rjóma og ís í eftirrétt.
Í dag fór Már svo snemma í vinnuna, og ég er bara frá vegna mikillar ólgu í maganum, en Garpur er í ævintýraferð með ömmu sinni ... það eina sem ég veit, er að þau ætluðu í Húsdýragarðinn, kannski í heimsókn til Skúla frænda og í fjöruferð. Vona að hann komi þreyttur heim, rjóður í vöngum, með fullt að segja mér, þá er mínum degi bjargað!
Fyndið hvernig líðan barnsins er mælikvarði á líðan fjölskyldunnar ... en þannig er það allavegana á þessum bæ, ef honum líður vel, þá líður öllum alltaf vel!
Eða svona næstumþví alltaf.



1 afskipti:
"ef honum líður vel, þá líður öllum alltaf vel"
...og öfugt.
Post a Comment
<< Home