Sónar
Ég er alls ekki nógu dugleg að blogga ... það er komin vika síðan við fórum í sónarinn og ég er að skrifa um hann fyrst núna!!
Allavegana, þá fórum við í hann sl.mánudag og vorum heilluð að því hvað græjurnar eru orðnar nákvæmar ... það eru nýkomin ný tæki hjá þeim þarna á Kvennadeildinni og í þeim sér maður allt svo skýrt.
Við fengum ma. að vita að það er mjög líklega lítil dama á leiðinni ... mamma kom með okkur og henni sýndist stúlkan vera stóreygð og með lítið nef, en við sjáum til með það?
Annað sem við fengum að vita í sónarskoðuninni, er að fylgjan er staðsett mjög neðarlega í leginu á mér. Ég mun fara aftur í sónar þegar nær dregur að fæðingunni, en ef fylgjan hefur ekki fikrað sig upp legvegginn (sem er reyndar mjög líklegt að gerist), þá gæti ég þurft að fara í keisara. Pínu bömmer fyrir konu sem gerir ráð fyrir að eiga heima, en svona er lífið, það verður ekki alltaf á allt kosið!
Annars er allt í góðu hjá mér, mér finnst ennþá sjást alltof lítið á mér, en ég finn þó allavegana hreyfingar reglulega núna, alveg oft á dag ... það er voða notalegt!



0 afskipti:
Post a Comment
<< Home