Ökuníðingur aldarinnar
Nei, djók ... en helst er frá því að segja, að ég náði prófinu í dag og það með glæsibrag!!!
Ég er alveg rosalega stolt.
Ég er líka bara búin að vera að keyra síðan, er svo heppin að mamma skildi bílinn sinn eftir í minni umsjón á meðan að hún fór til Kanada, hún kemur ekki heim fyrr en 13.nóv.
Nú verð ég úti í umferðinni þangað til .. so be afraid, be very afraid, úahahahahaha ....



2 afskipti:
Hjartanlega til hamingju með bílprófið elsku frænka. Þú ferð bara varlega í umferðinni. Það er til aukahlutur við bílbelti fyrir ófrískar konur. Þetta er bara þunn seta sem festist afur fyrir bakið á sætinu og síðan kemur lykkja upp milli læranna sem heldur þverbandinu á bílbeltinu örugglega fyrir neðan bunbuna. Bara láta þig vita af því ef þú ekki vissir! Gangi þér vel. Ég er alltaf með dót í bílnum sem þú átt hjá mér kanski hef ég tíma á morgun til að koma því til þín!
Sjáumst eða heyrumst! Knús Magga
Til hamingju með bílprófið :0)
kv. Hófí
Post a Comment
<< Home