Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Wednesday

Skammtímaminnisleysi dauðans

Skammtímaminnið mitt er officially dáið ... ég man ekkert stundinni lengur, er alltaf að taka að mér að gera eitthvað, og er einmitt í 1000 mismunandi verkefnum þessa dagana og man hreinlega ekki neitt og er alltaf að klúðra einhverju!

Ég er meira að segja svo slæm að ef ég hef skrifað hluti niður til að muna þá, þá ég man ekki hvort ég skrifaði þá niður og þá hvar ... veit ekki hvar ég á að leita til að finna allt sem ég þarf að muna!
Var til dæmis að finna litla bók, með fullt af gagnlegum upplýsingum sem ég hafði skrifað til sjálfrar mín, í veskinu sem ég notaði í síðustu viku. Ég var alveg búin að gleyma að ég ætti þessa bók yfir höfuð.

Nú ætlar Már að hjálpa mér að skipuleggja mig, með því að nýta tæknina á einhvern hátt ... vona að það virki eitthvað!

1 afskipti:

At 11/02/2005, Anonymous Anonymous said...

Þá er nú fokið í felst skjól ef minnisleysi er farið að hrjá þig Stína mín. Gangi þér vel að muna.
þín Magga

 

Post a Comment

<< Home