Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Friday

Keyri keyri keyri ...

Ég er búin að keyra nonstop síðan ég náði prófinu í gær ... það er svo gaman að villast í umferðinni í Reykjavík, I LOVE IT!

Ég fór með Garp í Náttúrugripasafnið í Kópavogi, eftir að ég sótti hann í leikskólann í gær, og skoðuðum uppstoppuð dýr, steina og beinagrindur. Þaðan ákáðum við svo að fara í gæludýrabúð, til að skoða lifandi dýr (ókeypis) ... en á leiðinni úr Kópavogi og niðrá Grensásveg, tókst mér að villast útí Smiðjuhverfi Kópavogs, uppí Breiðholt og Ártúnsbrekkuna.
Þetta var svaka ævintýri, en vegna þess að við vorum nú ekkert að flýta okkur, þá var þetta æðislega gaman!

Í morgun ók ég svo um Þingholtin í dágóðan tíma áður en ég fór að vinna í Verksmiðjunni, og komst meðal annars að því að gjaldmælarnir í bílastæðahúsunum taka ekki debetkort!!! Mjög asnalegt!!! Ég skil ekki hvernig maður á að geta farið niður í bæ á bíl á virkum degi, án þess að vera með hanskahólfið fullt að klinki???

En, það er ýmislegt sem maður þarf að læra sjálfur, sem maður lærir ekki í ökunáminu ss. að rata um borgina og að borga í bílastæðahúsum ... ég á eflaust eftir að reka mig á fleiri hluti bráðum, en þetta er samt rooooosalega GAMAN ... mér finnst ég vera orðin svo stór.

1 afskipti:

At 11/05/2005, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með bílprófið!!

 

Post a Comment

<< Home