Nálastungumeðferð
Í dag var hringt í mig frá Miðstöð Mæðraverndar, og mér tilkynnt að ég fengi að vera með í rannsóknarverkefni hjá nokkrum ljósmæðrum þar.
Verið er að fara að rannsaka nálastungumeðferð gegn grindarlosi. Ég hlakka svo til að byrja í þessu, ég á að mæta til þeirra tvisvar í viku, klukkutíma í senn, í fjórar vikur!
Sem sagt, ég mun liggja í heilar 8 klukkustundir í nálastungumeðferð fram að jólum!!!
_____
Viðbót, pikkuð inn þann 3.jan.2006:
Rannsóknarverkefnið gekk rosavel, frá mínum bæjardyrum séð allavegana.
Ég fór sumsé í nálastungumeðferð, tvisvar í viku, við grindarverkjum sem ég var byrjuð að fá, og það slokknaði barasta á verkjunum hjá mér eftir þrjár heimsóknir!!!
Ég hef ekki hugmynd um það hvernig rannsóknarverkefnið gekk þegar á heildina er litið hjá öllum sem þátt tóku, en sennilega er enn verið að vinna úr niðurstöðunum. En þetta var æði fyrir mig.
Ég hef enga reynslu af nálastungum og skil ekki hvernig þær vinna á verkjunum, eða hvort þær geri það yfir höfuð ... en verkirnir mínir hurfu alveg, og það í miðri vinnutörn þegar álagið á mér var hvað mest!!! Og ég hef ekki fundið fyrir verkjunum aftur síðan.
Mér finnst þetta náttúrulega bara vera lyginni líkast, en er voðalega sátt við að hafa fengið að taka þátt og njóta ávinnings nálastungnanna.



3 afskipti:
Thank you!
[url=http://dnbkdhbp.com/siev/fwuw.html]My homepage[/url] | [url=http://lqsrbzlf.com/ypgf/ovrv.html]Cool site[/url]
Well done!
My homepage | Please visit
Great work!
http://dnbkdhbp.com/siev/fwuw.html | http://iisqtopp.com/oons/uajm.html
Post a Comment
<< Home