Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Saturday

Fatatiltekt

Ég er að taka til í fötunum mínum í dag. Ég hef nefnilega ákveðið að taka öll fötin sem ég passa ekki í, og mun ekki passa í næstu mánuðina, setja þau í svarta ruslapoka og geyma þau í geymslunni kjallaranum.
Svo, þegar mér finnst öll fötin sem ég er með uppivið vera orðin alltof stór og púkó, þá fer ég oní geymslu og dreg hvern dýrgripinn uppúr pokunum á fætur öðrum, og segi (upphátt) við sjálfa mig "Nú dámar mér, ég var einusinni svona mikil smekkmanneska í klæðaburði ... en hvað ég er heppin, nú þarf ég EKKI að fara út og kaupa mér fullt af nýjum fötum!". Góð hugmynd? Svona næ ég svo að blekkja sjálfa mig til að eyða minni pening í föt eftir að maginn er farin.

Aðalástæðan fyrir því að ég er að gera þetta er samt aðallega sú, að ég finn ekki fötin sem ég passa þó í, fyrir öllum hinum sem eru eins og sniðin á einhverja písl (hahaha, stóra písl!) ... ég er núþegar búin að fylla tvo svarta ruslapoka!

0 afskipti:

Post a Comment

<< Home