Lilypie6th to 18th Ticker Lilypie 2nd Birthday Ticker

Thursday

Endalaus hamingja

Úff, ég er að vinna núna við að leggja lokahönd á búningana fyrir "3 systur" í Nemendaleikhúsinu, en frumsýningin verður núna á sunnudaginn.

Þetta er verkefni hjá mér sem óx töluvert núna undir lokin á því, en upprunalega var ég ráðin til að aðstoða Móu með búningana, þar sem að hún var ráðin inn í verkefnið sem leikmynda-og búningahönnuður ... svo einhvernvegin þróaðist það þannig að ég er orðinn búningahönnuður verksins og Móa leikmyndahönnuður þess.
Ábyrgðin og álagið, sem átti bara að vera í lágmarki hjá mér, er að enda bara í hámarki og verkið er gjörsamlega að éta upp allan þann tíma sem ég á að vera að eyða í Verksmiðju-fatalínuna mína ...

En þrátt fyrir þetta þá er ég mjög ánægð, það var rennsli hjá okkur í gærkvöldi og ég er hreinlega í skýjunum eftir það.
Rennslið gekk vel, leikmynd, ljós og búningar eru alveg að smella saman í fallega heild ... og vinnan sem ég á eftir í að fínisera búningana, er merkilega lítil miðað við það að það eru enn þrír dagar í frumsýninguna!!!

Ég hlakka samt svo til að vera búin í þessu verkefni.
Á mánudaginn hefst vinnan mín á fullu aftur á vinnustofunni, jólaundirbúningurinn fær aðeins að slæðast inn aftur á heimilið ... gestir koma að utan ... Már á 30'ugs afmæli ... þetta er og verður allt svo yndislegt!

3 afskipti:

At 8/05/2006, Anonymous Anonymous said...

Well done!
[url=http://ocmzxqqx.com/ghhz/zjyb.html]My homepage[/url] | [url=http://rnkkfhfw.com/kaic/wtna.html]Cool site[/url]

 
At 8/05/2006, Anonymous Anonymous said...

Well done!
My homepage | Please visit

 
At 8/05/2006, Anonymous Anonymous said...

Well done!
http://ocmzxqqx.com/ghhz/zjyb.html | http://fpwhomkz.com/fwps/dtuc.html

 

Post a Comment

<< Home