Ótrúlegt!!!
Í fyrranótt var brotist inní Verksmiðjuna (galleríið á Skólavörðustíg sem ég er með textílverkin mín til sölu í). Innbrotsþjófurinn(/-arnir) tók(/-u) útvaldar vörur úr búðinni, þær í dýrari kantinum, þar á meðal næstum öll mín verk.
Það sem er ótrúlegast við þetta allt saman, er að það var einungis stolið verkum frá tveimur hönnuðum, okkur Sunnevu (en í Verksmiðjunni eru 8 hönnuðir með vörur/verk til sölu) ... go figure!
Lögreglan er náttúrulega komin þetta dularfulla mál ... en upphæðirnar sem við erum að tapa með þessu eru rosalegar, sérstaklega fyrir svona fátæka listamenn eins og okkur!!! Úff, ég vona að þýfið finnist sem allra fyrst, ég má alls ekki við því að tapa verkunum mínum.
Meðal þess sem var stolið úr búðinni voru flíkurnar hér fyrir neðan, jakkinn er "one of a kind" úr handþrykktu silki og pilsið úr handþrykktu hörefni, en það eru til þrjú svona pils ... að fólk skuli láta sér detta í hug að gera svona lagað, ég bara skil það ekki!



3 afskipti:
Ó mæ god. Ég vona að málið upplýsist hið fyrsta og þú og þið fáið flíkurnar aftur. Þvílík blóðtaka. Samt svolítið sérkennileg staða sem þú ert í; innst inni er það kanski egobúst að þjófarnir skulu hafa valið hönnun manns umfram aðra til að stela á en á sama tíma og hefur maður tapað stórfé? Það er ekki eins og að þjófarnir geti spókað sig um allt í þessum flíkum með það á hættu að mæta ykkur. Hefði verið gáfulegra að stela fjöldaframleiddum smáhlutum. Nei annars það er ekkert gáfulegt við það að stela. Vona bara heitt og innilega að málið leysist.
Aiiii! That's horrible! It leaves one with such a vile feeling to be the victim in such a case. I hope the thieves are caught a.s.a.p. and your wares returned intact and unharmed!
The only positive note here is that the thieves had impecable taste!
For those who can't understand Icelandic, here's the summary of this entry:
The shop that I'm selling my designs in, was robbed the other day. There are eight of us selling our designs there, but the burglerers only took stuff from two of us. My products were basically all taken!
The police is investigating this strange robbery.
Post a Comment
<< Home